Thursday, February 14, 2008

flutningur - hef flutt mig á blog.is - en þið verðið bara að finna mig muahahahahaha

Tuesday, August 28, 2007

ole og lax

já sorgardagur í dag... Ole Gunnar búinn að leggja skóna á hilluna :-( ekki að þetta hafi komið manni á óvart en dapurlegt engu að síður...

fór í laxveiði í Ytri-Rangá um helgina og mikið óskaplega var þetta gaman! Ég veiddi Maríulaxinn á föstudaginn í þriðja kasti!!!! Svo tók ég 8 til viðbótar það kvöldið...alger snilld! Ég var hins vegar minna vinsæl þegar ég kom heim í hús um kvöldið og var mikið plottað að setja svefnlyf í rauðvínið mitt svo ég myndi sofa af mér veiðina daginn eftir....



Ég virðist hins vegar vera stangveiðikona að eðlisfari því bæði náði ég kastinu (bæði með 14 feta og 12,6 feta stöngum) um leið og er svo greinilega aflakló... ég var búin að fá nóg eftir 15 laxa og ákvað að veiða ekkert síðasta daginn enda var öxlin farin að kvarta soldið undan álaginu... Get s.s. vel mælt með Rauðri Francis sem að ég er að spá í að ramma inn. Nú er það bara laxakúrinn fram að jólum... reykti laxakúrinn... Og nú er veiðidellan alveg búin að grípa mig....svona ofan í allar hinar dellurnar: köfun, tangó, bókalestur etc...

Er þó svekkt að hafa misst af skemmtilegu MH reunion í gervi tvöfalds þrítugsafmælis....


Skrepp á Vopnafjörð á morgun og til þess að þurfa ekki að gista að þá legg ég það á mig að keyra í 2 tíma til Egilsstaða og ná vél heim um kvöldið - það er nefnilega bara flogið einu sinni á dag til Vopnafjarðar - og ekki einu sinni beint!!! Já það er greinilega ekkert grín að búa úti á landi...

Mikið óskaplega flýgur tíminn hratt.... það er allt í einu að koma september og ég er á leið í ítölsku formúluna bara í næstu viku... þetta var alltaf svo langt í burtu!

Áður en ég veit af verður kominn nóvember :) jibbýýý

Monday, August 20, 2007

bankatónleikakeppnishelgin

þá er tónleika og menningarveisla íslands að baki :-)
ég var mjög menningarleg og fór að versla á sjálfan menningardaginn....hehe kominn tími til :-) Vil óska þátttakendum í maraþoninu til lukkur - Ofurhjúkkunni sérstaklega....

helgin var reyndar bara mjög góð - svona feelgood helgi.... buðum fólki í mat á föstudaginn sem var bara mjög kósí og mörg mikilvæg málefni rædd... laugardagurinn fór m.a. í ræktina, að versla, að horfa á afhjúpun bronsstyttu, indverskan mat (nammidagur víííí) og flugeldasýningu. Maður var svakalega villtur og fór að sofa eftir miðnætti...hehe og svaf líka góða 10 tíma eða svo.

Eftir to do listann um daginn var ákveðið að fara á mynd no.2 á bíódögum - Curse of the Golden Flower - hún var mjög myndræn og flott en öðruvísi en ég hafði ímyndað mér - en mikið er hann Chow Yun-Fat alltaf flottur! Maður situr dolfallin yfir litadýrðinni og almennt dýrðinni í kringum keisarafjölskylduna....sannlega má segja að völd færi manni ekki hamingjuna. Nú er spurning hvaða fleiri myndir maður nær að horfa á....

Könguló vísaði mér í berjamó á sunnudagskveldi - og mikið assgoti eru krækiberin góð - ég varð bara að stoppa mig af svo að maður fengi ekki í magann af þessu öllu. Við Fribbi eigum það nefnilega sameiginlegt (ásamt svo mörgu öðru) að vera sko miklu hrifnari af krækiberjum heldur en bláberjum...

Chardonnay klúbbur heima á morgun - það þýðir að ég þarf að fara í ræktina í fyrramálið í stað þess að fara eftir vinnu...ohh well - nú er bara að finna hvað maður á að bjóða dömunum uppá með ekki svo mikilli fyrirhöfn og sem að er sæmilega hollt... kannski ávextir, brauð og salat séu málið....

Veiðiferð í Ytri-Rangá framundan - hlakka mikið til og vonast til að fá maríulaxinn þrátt fyrir að það þýði að ég þurfi að bíta uggann af kvikindinu og drekka staup. En því miður missi ég af afmælinu hjá Höska og Magga :-( finnst það mjög súrt.... er enginn sem vill ná í mig og keyra svo aftur með mig í Rangána eftir partýið....???

Tuesday, August 14, 2007

man ekki



hvort ég var búin að setja inn myndir af maldives... bara smá sýnishorn af paradís...

Egill Helga bókagagnrýnandi

já mér var pínu brugðið þegar ég las að Egill Helgason ætti nú að fara að gagnrýna bækur... og ákvað að kíkja á hans fyrsta effort...Tvær Amerískar Skáldsögur

Eins og sjá má færir hann nákvæmlega engin rök fyrir sinni gagnrýni annað en það að honum hafi fundist bækurnar leiðinlegar...mjög svo fagmannlegt. Ég hef nú bara lesið aðra bókina sem hann fjallar um The Road og mér fannst hún mjög góð og gæti vel skrifað hér langan bálk um það hvers vegna mér fannst hún góð en þar sem að ég hef ekki ennþá verið ráðin til að vera bókakrítiker að þá sleppi ég því. En ég held að þetta hljóti að setja tóninn fyrir þennan "bókaþátt" Egils Helgasonar... ég sé fram á að þarna muni Egill sitja og nöldra yfir bókum sem að þóknast honum ekki en ekkert endilega tilgreina hvers vegna.... aþþíbara eins og krakkarnir segja.... og þetta fær maðurinn borgað fyrir. Well - læt það vera að útiloka þáttinn þar til ég hef upplifað hann...

Monday, August 13, 2007

v-helgin, þjálfun, plan ofl...

Verslunamannahelgin.... sem átti að eyða í Bakpokaferðalagið Mikla fór nú aðeins öðruvísi en ætlað var.... við ákváðum að fresta bakpokaferðinni með allt á bakinu sökum veðurs og gista þess í stað í "lúxus"... Skelltum okkur á Hótel Framnes á Grundarfirði sem að er huggulegt family owned hótel við höfnina...ossa fínt. Laugardagurinn í rokinu fór í að kanna sunnanvert nesið...með tilheyrandi stoppum út um allt. Á sunnudaginn var frábært veður og við ætluðum

Einnig hefur heilsuátak númer milljón byrjað.... nú á að koma sér í bikiniform fyrir Maldives....var að byrja hjá einkaþjálfaranum og búin að prófa spinning þannig að þetta er á réttri leið (reyndar veit ég ekki hvort að bjórinn sem að ég fékk í gær hafi verið í matarprógramminu ehemm....). En það er mjög fyndið að þegar maður er að reyna að passa hvað maður borðar og að borða reglulega - þá hugsar maður ekki um annað en mat.... pirr pirr. Ég fékk reyndar góð ráð frá Nönnu klippara - halda matardagbók...það er sálfræðilega erfiðara að skrifa niður eitthvað óhollt heldur en bara að stinga því upp í sig....bara svo erfitt að muna eftir því að puntka þetta hjá þér...

Fór á stutta en skemmtilega tónleika á fimmtudaginn - Lady D and the Soft Tones - flott söngkona og flott undirspil - lög úr öllum áttum....en flest róleg og þægileg. Á þessum tónleikum ákváðum við skötuhjúin margt.... að fara í Yoga, á mexíkóskt matreiðslunámskeið, bjóða í matarboð, amk 1x í leikhús á leikárinu - ofl :-) Verður því nóg um að vera í vetur...

Helgin fór í ratleik, áttræðisafmæli, Argentína steikhús, rok við Hítarvatn þar sem einn silungur var að stríða mér..... smá svefn.

Horfi núna út um gluggann á skrifstofunni minni - og í garði nágrannans er búið að leggja svona skemmilega á borð...ætli mér sé boðið?? Langar í löns í sólinni... djöfull hefur maður ekki verið duglegur í því í sumar....ansans!!

Skemmtilegur saumó um daginn... alltaf eitthvað að frétta....

Friday, August 10, 2007

bloggað aftur?

á maður að gera aðra tilraun til að halda úti bloggi? já það er spurning....

kannski að ég prófi það :-)

Nú á ég tvö lítil systkinabörn í viðbót.... Hekla þeirra Eyþórs og Ingu og Prinsinn þeirra Erlu og Óla - ég er ógurlega stolt og vill meina að öll fegurðin komi beint frá mér...!!

Labbaði yfir Fimmvörðuhálsinn í 5ta skipti og alltaf sér maður eitthvað nýtt... Skemmtilegur félagsskapur, skemmtilegt og fjölbreytt veður (frá sól, í rigningu, í hagl) og leiðin tekin með rólegheitum sem þýðir að maður fær tíma til að skoða í kringum sig á leiðinni. Sumir sofnuðu snemma og náðu ekki einu sinni að borða kvöldmat - nema homblest og kók sé kvöldmatur. Við hin sem að meikuðum ekki að tjalda í rigningunni í Mörkinni fengum inni í skála með miklu harðfylgi. Eldamennskan var tekin rólega enda var verið að kyngja síðasta piparsteikarbitanum og rauðvínssopanum um miðnætti. Þá tók nú við smá söngur og gleði í eldhúsinu og maðurinn sem hélt konu sinni í gíslingu og lét öllum illum látum fór alveg framhjá okkur. Þó grunar mig að þetta sé skringilegi maðurinn sem reyndi að hrifsa af mér poka einhvern tíma um nóttina....en hver veit. Anyhou - þá er auðvitað stefnt á aðra ferð að ári liðnu.... hætti ekki fyrr en ég kemst í 10 ferðir !!

Nú styttist aldeilis í Maldives ferðina ma'r - 3 mánuðir sem að fljúga hjá áður en maður veit af... ég er næstum dáin úr tilhlökkun :-) Hlakka geggjað til að kafa með hákörlum og djöflaskötum... vona að maður nái að kafa amk 1x með þeim :-) Svo er það bara pálmatré og sandur og vika í water villa sem er á stultum yfir vatninu...eins og í ævintýri....brill brill brill

more to come later :-)

Thursday, July 26, 2007

strengir og annað

ég hlæ og hlæ í dag - í hvert sinn sem að ég hreyfi mig...

hvers vegna spyrðu líklega...

já eftir að hafa hlustað á betri helminginn dásama spinning nú í tvö ár ákvað ég loksins að prófa dæmið.... Ég labba inn og var búin að búa til afsökun ef ég skyldi þurfa að labba út aftur eftir 5 mín sökum þreytu (veik frænka...).

Well - ég kemst í gegnum allan tímann og fannst þetta nú ekki eins slæmt og ég hafði ímyndað mér - fannst ég ekki reynan neitt brjálæðislega á mig...

Svo vakna ég daginn eftir og er nú ansi stirð... dreif mig nú samt í leiðinlegan pallatíma til að losa um harðsperrurnar....

Dagur tvö - í dag - rennur upp og mín getur varla labbað fyrir harðsperrum!!!

Vona bara að ég verði laus við þetta fyrir Fimmvörðuhálsinn um helgina!